Innlent

Náði að forða sér út í tæka tíð

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um eld í fólksbíl á Salavegi í Kópavogi um hádegisbilið í dag. Bíllinn brann til kaldra kola en eldurinn kom upp þegar bílstjórinn var að keyra í rólegheitum á götunni. Hann náði að forða sér út í tæka tíð og varð því ekki meint af. Eldsupptök eru óljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×