Lífið

Skilin eftir níu ára hjónaband

MYNDIR / COVER MEDIA
The Big Bang Theory-stjarnan Mayim Bialik er skilin við eiginmann sinn Michael Stone eftir níu ára hjónaband. Parið á synina Miles, sjö ára og Fred, fjögurra ára saman.

"Skilnaður er sársaukafullur og óskiljanlegur fyrir börnum. Þetta er ekki eitthvað sem við ákváðum í flýti," segir Mayim.

Þau Michael leggja mikla áherslu á að gera þetta eins auðvelt og hægt er fyrir börnin.

"Synir okkar eiga skilið foreldra sem láta sér annt um heilsu þeirra og uppvöxt og við einbeitum okkur að því. Einkalíf okkar hefur alltaf verið mikilvægt, ekki síst núna. Þetta verður allt í lagi."

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.