Takmarkanir hafa lítil áhrif á RÚV 18. febrúar 2012 07:30 Katrín Jakobsdóttir segir að hún vilji gjarnan takmarka auglýsingaþátttöku RÚV, en án þess að skerða heildartekjur fyrirtækisins. fréttablaðið/anton brink
Meðallengd sjónvarpsauglýsinga í dagskrá Ríkisútvarpsins (RÚV) er rúmlega þriðjungur af því hlutfalli sem nýtt frumvarp um starfsemi fyrirtækisins takmarkar þær við. Þetta kemur fram í tölum sem teknar voru saman fyrir Fréttablaðið. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir frumvarpið geta tekið breytingum ef athugasemdir við það gefa tilefni til þess. Meðallengd sjónvarpsauglýsingahólfa á kjörtíma, milli 18 og 23, hjá RÚV er 3,7 mínútur á klukkutíma, samkvæmt tölum sem teknar hafa verið saman fyrir Fréttablaðið. Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun laga um RÚV skilaði af sér drögum að frumvarpi til laga í síðustu viku. Samkvæmt því á RÚV að takmarka hlutfall auglýsinga í dagskrá sinni við tíu mínútur á klukkutíma. Í tölunum kemur einnig fram að meðallengd auglýsingahólfa hjá RÚV á kjörtíma í desember, sem er helsti auglýsingamánuður ársins, var 5,2 mínútur á klukkutíma. Alls fór lengd auglýsinga hjá RÚV yfir tíu mínútur í tíu klukkutíma í mánuðinum. Lengsta auglýsingahólfið var 11,7 mínútur á milli klukkan 22 og 23 á gamlárskvöld, en útsending Áramótaskaupsins hófst klukkan 22.30 á þeim degi. Takmörkunin mun því ekki hafa teljandi áhrif á sölu RÚV á sjónvarpsauglýsingum nema nokkra klukkutíma á ári. Til viðbótar við ofangreindar takmarkanir verður RÚV gert óheimilt að slíta í sundur dagskrárliði til að koma að auglýsingum, vöruinnsetning verður gerð óheimil í innlendri dagskrárgerð og fyrirtækið þarf að birta gjaldskrá sína opinberlega. Katrín segist gjarnan vilja takmarka auglýsingaþátttöku RÚV. Hún vill þó gera það án þess að skerða heildartekjur fyrirtækisins. „Nefndin teiknaði upp einhvers konar takmarkanir og vill láta RÚV birta gjaldskrá og öll afsláttarkjör. RÚV metur það sem svo að þessu fylgi skerðing á tekjum upp á 186 milljónir króna. Síðan á eftir að fara yfir þessar tillögur og ég reikna með að þingið eigi eftir að skoða þær. Það sem ég hef alltaf sagt er að ég vil gjarnan takmarka auglýsingaþátttöku RÚV, en ekki skerða tekjur fyrirtækisins. Við erum að auglýsa eftir athugasemdum við frumvarpið og þær kynnu að hafa áhrif á það.“ Frestur til að gera athugasemdir við frumvarpsdrögin rennur út í dag. Katrín reiknar með að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi í byrjun marsmánaðar.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira