Lífið

Gera vikulega raunveruleikaþætti á You Tube

ÁP skrifar
Hljómsveitin Steed Lord heldur sína fyrstu tónleika í þrjú ár á Íslandi í jólamánuðinum.
Hljómsveitin Steed Lord heldur sína fyrstu tónleika í þrjú ár á Íslandi í jólamánuðinum.
„Við ætlum að reyna að vera með þátt í hverri viku, vonandi getum við staðið við það,“ segir söngkonan Svala Björgvinsdóttir um nýja raunveruleikaþætti hljómsveitarinnar Steed Lord á vefmiðlinum You Tube.

Fyrsti þátturinn er þegar farinn í loftið en þar er fylgst með lífi þeirra Svölu, Einars og Edda vestanhafs. „Okkur langaði að gera raunveruleikaþætti til að sýna hvað er að gerast bak við tjöldin hjá okkur. Við höfum oft fengið skilaboð frá aðdáendum okkar sem vilja fá að vita hvernig við búum til tónlistina. Þess vegna ákváðum við að skrásetja allt og klippa saman í litla þætti,“ segir Svala, en í fyrsta þættinum er meðal annars hægt að fylgjast með sveitinni á tónleikum og við tökur á tónlistarmyndbandi.

Steed Lord er á leiðinni til Íslands og ætlar sveitin að leika fyrir landann í fyrsta sinn í þrjú ár. Tónleikarnir verða ásamt Legend, hljómsveit Krumma sem er bróðir Svölu, þann 1. desember á Gamla Gauknum. „Við hlökkum mikið til að spila loksins á Íslandi. Íslendingar kunna að skemmta sér og eru ekkert hræddir við að sleppa sér á tónleikum, syngja og dansa með eins og vitleysingar. Það er frábært.“

Sveitin er þessa dagana að leggja lokahönd á nýja plötu og ætla því að spila ný lög í bland við gömul.

Svala stefnir á að eyða jólunum á Íslandi í fyrsta sinn í tvö ár. Hún kemur fram með föður sínum, Björgvini Halldórssyni, á jólatónleikum hans þann 15. desember í Höllinni. „Það er svo langt síðan ég var heima síðast að landið er farið að kalla á mig. Loftið, fjölskyldan, náttúran, fólkið og vinirnir. Það verður dásamlegt að eyða heilum fjórum vikum á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.