Ekki bara vínhérað 10. október 2012 10:58
Bordeaux er nafn sem margir hafa heyrt og kannast við enda eru milljónir vínflaskna merktar þessu franska héraði. Það vill þó oft gleymast að Bordeaux er líka nafn á borg í suðvesturhluta Frakklands sem er spennandi áfangastaður fyrir ferðalanga. Borgin og nágrenni hennar eru full af sögulegum og menningarlegum minjum, svo sem kastölum, kirkjum og styttum. Svæðið hefur upp á margt að bjóða og flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fyrir vínáhugamenn ætti það að vera mikil upplifun að koma til þessa þekkta héraðs þar sem ársframleiðsla er um það bil 960 milljón vínflöskur frá tugum þúsunda framleiðenda. Landslagið er fallegt og tilvalið að hjóla um sveitir héraðsins. Þannig má kanna öll litlu þorpin, hitta íbúana og upplifa menninguna. Kastalar eru á hverju strái þannig að engu er líkara en að fólk sé statt í ævintýri. Margir kastalanna eru á vínekrum og eru opnir almenningi sem getur þá fengið leiðsögn um vínræktarsvæðið og framleiðsluferlið. Jafnvel er boðið upp á vínsmökkun. Bordeaux er merkileg borg fyrir margar sakir. Hún er ein af elstu borgum Frakklands og fræg fyrir arkitektúr sinn. Borgin er skráð á heimsminjaskrá UNESCO og í henni eru skráð 362 söguleg minnismerki og elstu byggingar hennar eru frá tímum Rómverja. Auk alls þessa er ágætt að versla í borginni. Í hjarta hennar er Rue Sainte-Catherine sem er 1,2 kílómetra löng göngugata full af verslunum, veitingastöðum og kaffihúsum. Frakkar eru einmitt þekktir fyrir matargerð sína og má njóta hennar á fjölmörgum veitingastöðum borgarinnar. Ostrur, "foie gras", alls konar paté ásamt glasi af léttvíni úr héraðinu er uppskrift að góðum, frönskum málsverði.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira