Í dýrð haustlita 10. október 2012 10:41 Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á þingvöllum. Þar er haustdýrðin allsráðandi og draumur að dvelja um stund. Mynd/einar á. e. sæmundsen
Að hugsa sér að eiga slíkt land sem Íslendingar eiga og geta gengið áreitnislaust út á árbakkann til að horfa á það undur veraldar sem ísaldarurriðinn er," segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, nýkominn úr göngu niður Almannagjá með forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og forystumönnum KSÍ. "Í göngutúrnum stönsuðum við á álunum við Öxará og sáum þó nokkra gríðarstóra urriða á leið upp ána og að fossinum þar sem þeir takast á um hrygningar í frjóvgunarferlinu. Það var magnað sjónarspil og Þingvellir í glæsilegum búningi," segir Ólafur snortinn af fegurð og lífríki helgasta lands Íslendinga. "Það er óvíða fegurra en á Þingvöllum á haustin. Litskrúð haustdýrðarinnar er þó komið yfir hámark sitt og rauði liturinn að mestu horfinn. Yfirbragðið er engu að síður töfrandi í gulum og brúnum litatónum," segir Ólafur og horfir í átt til formfagurra Botnssúlna, Ármannsfells og Hrafnabjarga sem nú hafa gránað niður í rætur og skarta fannhvítu sjali. "Þingvallaferðir þurfa síst að líða undir lok þótt sumri hafi hallað. Hitastigið fer þó kólnandi og gott að vera vel búinn. Hér er margt að sjá og fegurðin yndisleg," upplýsir Ólafur. Hann segir framlag þjóðgarðsins í verkefninu "Ísland allt árið vera opnun fræðslumiðstöðvarinnar í allan vetur, en hún er opin daglega frá klukkan 9 til 17. "Þar er hægt að hlýja sér, komast á salerni, fá sér kaffisopa og skoða fallegar bækur. Þaðan er svo ævintýri að ganga niður nýju brautina í Almannagjá sem er að mestu leyti frágengin eftir að glufa opnaðist í gjánni vorið 2011," segir Ólafur. Frá Reykjavík er um 35 mínútna akstur til Þingvalla og margt sem gleður augað á leiðinni. "Til Þingvalla er endurnærandi að koma, í friðinn og kyrrðina sem einkennir Ísland. Ferðamenn eru fáir á þessum árstíma. Því þarf ekki að ganga mörg skref til að verða einn í heiminum og vitni að undurfögrum haustblæ sem setur svip á landið þegar það býr sig undir vetrarsvefninn."
Mest lesið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Allt það helsta frá Ungfrú Ísland Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Sjá meira