Brottfluttir umfram aðflutta voru rúmlega 1.400 í fyrra 24. janúar 2012 09:20
Árið 2011 fluttust 1.404 fleiri frá landinu en til þess. Það dró úr brottflutningi á árinu miðað við árið áður, þegar 2.134 fluttust úr landi umfram aðflutta. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að Alls fluttust 6.982 frá landinu, samanborið við 7.759 á árinu 2010. Alls fluttust 5.578 manns til Íslands árið 2011, sem er svipaður fjöldi og árið 2010 þegar 5.625 manns fluttu til landsins. Íslenskir ríkisborgarar voru mun fleiri en erlendir í hópi brottfluttra, eða 4.135 á móti 2.847. Íslenskir ríkisborgarar voru einnig fleiri meðal aðfluttra en erlendir, 2.824 á móti 2.754. Alls fluttust því 1.311 íslenskir ríkisborgarar úr landi umfram brottflutta, en 93 erlendir ríkisborgarar. Í fyrra voru flestir brottfluttra á aldrinum 25–29 ára, flestir þó 24 ára af einstaka árgöngum. Fjölmennasti hópur aðfluttra var á aldrinum 20–24 ára. Tíðasti aldur aðfluttra einstaklinga var 23 ára. Þegar tekið er tillit til fjölda brottfluttra umfram aðflutta var mest fækkun vegna fólksflutninga frá landinu í aldurshópnum 30–34 ára. Árið 2004 hófust tímar mikilla búferlaflutninga til og frá landinu sem standa enn. Fyrstu fimm árin, 2004-2008, fluttist 15.921 einstaklingur til Íslands umfram brottflutta. Undanfarin þrjú ár (2009-2011) snerist dæmið hinsvegar við og héðan hafa alls 8.373 einstaklingar flust til útlanda umfram aðflutta. Á þessum átta árum hafa því flust 6.918 manns til landsins umfram brottflutta. Árið 2011 fluttust 3.022 íslenskir ríkisborgarar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar af 4.135 alls. Flestir fluttust til Noregs, eða 1.508. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einnig frá þessum löndum eða 2.113 af 2.824 alls, flestir þó frá Danmörku, eða 1.206. Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 1.000 af 2.847 alls. Þaðan komu líka 768 erlendir ríkisborgarar. Þetta flutningsmynstur hefur haldist óbreytt frá því 2009, nema hvað Noregur hefur orðið hlutfallslega vinsælli meðal íslenskra ríkisborgara og dregið hefur úr vægi Póllands sem helsta áfangastaðar erlendra ríkisborgara.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Sjá meira