Innlent

Bankastjóri Landsbankans gæti hækkað um eina og hálfa milljón í launum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Mánaðarlaun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, gætu hækkað um allt að eina og hálfa milljón króna verði frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um kjararáð samþykkt.

Árið 2009 var lögum um kjararáð breytt þannig að þeir sem heyra undir ráðið, fyrir utan forseta Íslands, máttu ekki vera með hærri laun en forsætisráðherra. Með þessu var ríkið að bregðast við breyttum efnahagslegum raunveruleika eftir hrun.

Samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur nú lagt fram á Alþingi er gert ráð fyrir því að Kjararáð geti vikið frá þessum viðmiðum.

„kjararáði er þá heimilt að víkja frá þessu viðmiði um laun forsætisráðherra ef að það kjararáð getur rökstutt það að það sé nauðsynlegt eða að það sé sem sagt sambærilegir hópar sem að sinna svipuðum störfum með svipaða ábyrgð séu með betri kjör," segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra.

Laun stjórnenda fyrirtækja í eigu ríkisins gætu því hækkað verulega verði þetta frumvarp samþykkt.

Af bankastjórum viðskiptabankanna þriggja er það aðeins Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans sem heyrir undir kjararáð en bankinn er að stærstum hluta í eigu ríkisins. Steinþór fær nú um eina milljón á mánuði í laun.

„Ég segi oft að ég sé sá bankamaður á Íslandi sem er með lægstu laun fyrir unna stund. Það að vera bankastjóri Landsbankans er ansi mikil vinna," segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.

Bankastjóri Arion banka er með tæpar þrjár milljónir á mánuði og bankastjóri Íslandsbanka með rúmar tvær og hálfa.

Laun Steinþórs gætu samkvæmt þessu hækkað um allt að eina og hálfa milljón. Fjármálaráðherra segir að upphaflega hafi einungis verið um tímabundna aðgerð að ræða og því sé eðlilegt að breyta lögunum nú.

„Það þarf auðvitað að líta á launaþróunina í samfélaginu þannig að starfsmenn ríkisins séu ekki með eitthvað viðmið sem engir aðrir, sem sinna sambærilegum störfum og með svipaða ábyrgð, eru með," segir Oddný að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×