Svona gætu flugbrautir vikið út í Skerjafjörð 24. janúar 2012 21:00
Hugmyndir um að flytja Reykjavíkurflugvöll að hluta út í Skerjafjörð eiga það sammerkt að þannig losnar mikið landrými og flugvöllurinn verður áfram á sömu slóðum. Í umræðum um samgönguáætlun á Alþingi fyrir helgi varpaði Árni Þór Sigurðsson, fyrrverandi forseti borgarstjórnar, fram þeirri sáttalausn að austur-vesturbrautin yrði lengd til vesturs út í Skerjafjörð en jafnframt kvaðst hann opinn fyrir því að hafa stutta þverbraut. Væntanlega yrði þá skoðað að halda eftir hluta núverandi norður-suðurbrautar eða jafnvel frekar litlu norðaustur-suðvesturbrautinni, sem gæti hentað betur gagnvart vindáttum, en sú braut hefði einnig möguleika á að færast út í sjó. Sveinn Guðmundsson verkfræðingur kynnti svipaða hugmynd fyrir fjórum árum, að lengja austur-vesturbrautina út í Skerjafjörð, en vildi þó að stutt norður-suður braut yrði alfarið á uppfyllingu á Skerjafirði út af Ægissíðu. Fyrir áratug lét borgarráð Reykjavíkur gera sérstaka úttekt á annarskonar útfærslu; að austur-vestur braut verði lögð út í Fossvog og Skerjafjörð þvert á norður-suðurbrautina. Borgarverkfræðingur áætlaði að þannig flugbraut á uppfyllingu myndi kosta 4,8 milljarða króna, sem á verðlagi í dag jafngildir tíu milljörðum króna, en á móti kæmu 75 hektarar lands til annarra nota. Gísli Halldórsson, arkitekt og fyrrverandi forseti borgarstjórnar, kynnti svipaða hugmynd fyrir áratug, en um minni flugvöll með austur-vestur braut útí Skerjafirði en norður-suðurbrautin yrði færð til aðeins vestar og stefnu hennar örlítið breytt. Róttækasta tillagan um flugvöll á Skerjafirði birtist þó sennilega í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Reykjavík í öðru ljósi, fyrir tólf árum, þegar hann myndgerði hugmynd Trausta Valssonar skipulagsfræðings um að flytja flugvöllinn alfarið út á Löngusker og hafa hann nægilega stóran til að hann gæti einnig tekið við millilandafluginu.
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Fleiri fréttir Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Sjá meira