Innlent

Tekist á flokksráðsfundi VG

Varaformaður Vinstri grænna segir flokksmenn sammála um að stilla saman strengi sína fyrir lokasprett kjörtímabilsins. Flokksráðsfundur fór fram í gær og í morgun, en meðal þess sem tekist var á um voru landsdómsmálið og staðgöngumæðrun.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna hófst í gær og stóð fram á kvöld, en fundarstörfum var fram haldið í morgun. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, segir flokksmenn hafa farið vítt og breitt yfir stöðuna nú þegar liðið er nokkuð á kjörtímabilið.

„Fólk lýsti ákveðnum áhyggjum vegna stöðu flokksins í skoðanakönnunum en fólk er líka ánægt með margt sem hefur áunnist," segir Katrín. Aðspurð hvort að rætt hafi verið um hvort að flokkurinn væri á rangri braut segir hún margir hafi lagt áherslu á að flokkurinn myndi stilla saman strengi og „fara sterk í síðasta hluta kjörtímabilsins."

Dagskrártillaga var í gær lögð fram um að ræða ríkisstjórnarbreytingarnar um áramótin sérstaklega, en hún var felld, og því voru þær ræddar ásamt öðru. Katrín segir þó skiptar skoðanir hafa verið um hvernig að breytingunum var staðið.

Flokksmenn ályktuðu ítarlega um Hverahlíðarvirkjun, en margir þeirra telja svokölluð verkefnafjármögnun Orkuveitu Reykjavíkur á virkjuninni sé einkavæðing á verkefninu, auk þess sem þeir hafi efasemdir um umhverfisáhrif hennar.

Þá ræddu þeir verðtrygginguna og skuldamál heimilanna og var mál manna að fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins skyldu ganga á undan með góðu fordæmi í þeim efnum.

Almennt voru umræðurnar hreinskiptnar og tekist á að mati Katrínar.

„Hér eigum við alltaf opnar og hreinskiptnar umræður, þessi fundur var ekki ólíkur öðrum með það. Það var að sjálfsögðu tekist á um mál," segir hún og nefnir þar til dæmis landsdómsmálið og staðgöngumæðrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×