Greindist með krabbamein fjórum árum eftir að hún fór fyrst til læknis Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. febrúar 2012 18:43
Kona sem leitaði ítrekað til heimilislæknis síns vegna slappleika var sagt að rekja mætti hann til breytingarskeiðsins og send aftur heim án rannsókna. Fjórum árum eftir að hún fór fyrst til læknis greindist hún með alvarlegt krabbamein. Hún segir krabbameinssjúklinga oft þurfa að bíða lengi eftir greiningu. Það var árið 2002 sem að Ingveldur Gísladóttir fór að finna fyrir mikilli þreytu og var slappleika. Þegar henni hafði liðið þannig um nokkurt skeið fór hún til heimilislæknis síns. Eftir skoðun sagði hann ekkert ama að henni. „Þetta er bara aldurinn og þetta er bara breytingarskeiðið, þetta fylgir bara. Það er ekkert að þér," segir Ingveldur. Vanlíðanin hvarf þó ekki og hún leitaði því aftur og aftur til lækna. Í tvö ár eftir að hún leitaði fyrst til læknis var hún ekki send í neinar rannsóknir heldur bara gefið verkjalyf. „Ég var búin að biðja heimilislækninn minn að skoða sérstaklega á mér nýrun því að móðir mín dó 43 ára gömlu úr nýrnasjúkdómi en hann hlustaði aldrei á mig. Ég fékk enga myndatöku." Hún var þó send í blóðprufu tveimur árum eftir að hún leitaði fyrst til læknis og í framhaldinu var mergsýni tekin ekkert kom út úr þeim rannsóknum. Á nýársdag árið 2006, fjórum árum eftir að hún fór fyrst til heimilislæknis síns, leitað hún svo á bráðamóttöku þar sem hún gat ekki losað sig við þvag. Þegar þvaleggur er settur upp fer að renna blóð og í framhaldinu var hún send í rannsóknir. Í ljós kom að hún var með krabbamein í nýrum og víðar í líkamanum. „Nýrað var tekið og það liggur upp með hryggnum, nálægt mænunni, svo er það í lungum víða mjög dreift og í kringum lungum og í hálsinum." segir hún. Ingveldur sagði sögu sína á fundi hjá Krabbameinsfélaginu um réttindi krabbameinssjúklinga í síðustu viku. Á fundinum höfðu fleiri svipaðar sögur að segja. En þeir töldu erfiðlega geta gengið að komast í ítarlegar rannsóknir þrátt fyrir vanlíðan í langan tíma. Ingveldur segir þetta oft eiga við um konur í kringum fimmtugsaldurinn. „Ég þekki nokkuð marga, sérstaklega hef ég heyrt það í ljósinu, konur hafa sömu sögu að segja og ég að það hafi ekki verið hlustað á þær." Ingveldur segir mikið hafa breyst þegar hún greindist með krabbameinið. „Það er frábærlega búið að krabbameinssjúklingum hérna á Íslandi í dag þegar þeir greinast, það er mjög mikil hjálp. Ég lít allt öðrum augum á lífið í dag en ég gerði. Það skiptir mig ekki máli að það sé svona smá ryk í horni. Ég reyni að njóta hvers dags til hins fullnustu eins og ég get en óneitanlega setur þetta strik í reikninginn," segir hún að lokum.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira