Segir Guðlaug Þór hafa komið gögnum í Kastljós 5. mars 2012 07:00 Rekinn Gunnari Þ. Andersen var sagt upp störfum sem forstjóri FME á föstudag. Ástæður uppsagnarinnar má rekja til Kastljósþáttar sem sýndur 17. nóvember síðastliðinn og fjallaði um störf hans fyrir aflandsfélög Landsbankans. fréttablaðið/vilhelm
Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins telur alþingismanninn Guðlaug Þór Þórðarson hafa komið gögnum um sig til Kastljóss og að þau gögn hafi verið undirstaðan í umfjöllun þáttarins um hann í nóvember síðastliðnum. Stjórn FME kærði Gunnar til lögreglu fyrir helgi vegna gruns um að hann hafi brotið af sér í starfi með því að hafa, með ólögmætum hætti, aflað sér upplýsinga um Guðlaug Þór. „Það er fullyrt í mín eyru, af mönnum sem ég treysti og trúi, að Guðlaugur Þór hafi komið gögnunum til Kastljóss sem umfjöllun þáttarins um mig byggði á," segir Gunnar. Hann vill ekki gefa upp hverjir það eru sem hafa fullyrt þetta. Gunnar telur einnig augljóst að miklu magni af gögnum um hann hafi verið lekið út úr Landsbankanum í þeim tilgangi að koma höggi á hann. Þá hafi skýrslur sem teknar hafi verið af honum hjá lögreglu í tengslum við rannsókn á Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi starfsmanns Landsbankans, einnig ratað til fjölmiðla. Stjórn FME sagði Gunnari upp störfum á föstudag og kærði hann til lögreglu vegna meintra brota í starfi. Kærumálið varðar upplýsingar um fjármál Guðlaugs Þórs sem Gunnar er talinn hafa aflað með ólögmætum hætti. Þrír menn voru yfirheyrðir vegna þess máls á föstudag. Auk Gunnars voru Ingi F. Vilhjálmsson, fréttastjóri DV, og starfsmaður Landsbankans, sem grunaður er um að hafa aflað gagnanna fyrir Gunnar, yfirheyrðir. DV birti frétt á miðvikudag sem talin er byggja á gögnunum. Aðspurður hvort hann hafi komið gögnunum til DV, segist Gunnar ekki vilja tjá sig. „Ég hef gefið skýrslu um mína hlið í málinu. Meira get ég ekki sagt enda málið enn í rannsókn." - þsj
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira