Nýja þyrlan hvorki með nætursjónauka né hitamyndavél Höskuldur Kári Schram skrifar 6. febrúar 2012 18:45
Nýja leiguþyrla landhelgisgæslunnar er illa útbúin og hefur takmarkaða getu til að sinna björgunarstörfum að nóttu til. Í vélinni er hvorki nætursjónauki né hitamyndavél. Þyrlan sem er af gerðinni Super Puma kom til landsins í gær en hún hefur fengið nafnið TF-SÝN. Hlutverk hennar verður að sinna eftirlits- og björgunarstörfum hér við land en í þyrluna vantar hins vegar mikið af þeim búnaði sem er nauðsynlegur til þess að hún geti sinnt þessu hlutverki að fullu. „Helsta vandamálið við þessa vél er að hún er ekki enn útbúin til leitar, björgunar og sjúkraflutninga. Þetta er farþegavél sem slík en hún hefur hins vegar ýmsa kosti. Hún er öflug, með stóra mótora og afísingarbúnað þannig að við komumst á milli staða í öllum veðrum," segir Björn Brekkan Björnsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Vélin er tuttugu ára gömul og hefur takmarkaða getu til að sinna björgunarstörfum að nóttu til. „Það er ekki búnaður fyrir nætursjónauka, það er ekki hitamyndavél eins og er í hinum vélunum okkar. Þannig að við hífingar úti á ballarhafi í svartamyrkri nýtist hún ekki nema að skip sem hífum úr sé þeim mun stærra til að sjá hindranir." Ein þyrla gæslunnar TF-LÍF er í reglubundinni skoðun í Noregi en hún kemur aftur til landsins í apríl. Þangað getur gæslan ekki sent björgunarþyrlur lengra en tuttugu mílur á haf út.Sumir myndu segja að svona þyrla væri að veita okkur falsk öryggi. „Hún gerir það sem hún er hönnuð fyrir. Hún er vissulega að veita okkur öryggi en ekki við allar aðstæður, en við flestar aðstæður. Í dagsbirtu er hún að gera fína hluti," segir Björn Brekkan að lokum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira