Mikki mús styður Ólaf Ragnar áfram í embætti forseta Gissur Sigurðsson skrifar 23. janúar 2012 07:16
Hægt er að skrá hvaða bull nafn sem er og hvaða kennitölurugl sem er, í undirskriftasöfnun,sem hófst á netinu fyrir helgi, þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson forseta, að gefa áfram kost á sér í embættið. Forritið kannar ekki einu sinni hvort kennitalan geti verið rétt eða ekki. Þannig prófaði Fréttastofan að skrá Mikka mús, sem stuðningsmann, með kennitölu, sem ekki getur staðist, og uppskar þakklæti fyrir stuðninginn. Klukkan sex í morgun höfðu liðlega 15.500 skráð sig á áskorunarlistann, að Mikka mús meðtöldum. Tómas Hafliðason sem leggur stund á doktorsnám í verkfræði við Háskóla Íslands kemst að þeirri niðurstöðu að þetta er án efa verst útfærða undirskriftarsöfnun sem hefur verið gerð á undanförnum árum. "Ég prufaði að setja inn kennitöluna sem var 111111-1119 og eitthvað rugl nafn. Þegar ég skráði kennitöluna, var sagt að hún væri skráð," segir Tómas í bloggi sínu á Eyjunni. "Það er sem sagt ekkert próf á kennitölum og greinilega er hægt að skrá hvaða kennitölu sem er án þess að það sé nokkuð kannað hvort kennitalan sé rétt. Sé eitthvað próf, þá er það í mesta lagi hvort lengdin sé rétt og mögulega seinasti tölustafurinn."
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira