Segir gagnrýni byggða á misskilningi Höskuldur Kári Schram skrifar 23. janúar 2012 18:26
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að gagnrýni flokkssystkina á ákvarðanir hennar í Landsdómsmálinu byggi á misskilningi. Að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn vilja að hún víki sæti sem forseti Alþingis. Þingflokkur samfylkingarinnar klofnaði í atkvæðagreiðslu í Landsdómsmálinu á föstudag. Fjórtán greiddu atkvæði með frávísunartillögu Magnúsar Orra Schram en fjórir greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni. Þingflokkurinn kom saman til fundar hér í húsakynnum Samfylkingarinnar í Kópavogi í dag en mikil ólga er innan flokksins eftir atkvæðagreiðsluna á föstudag. Heimkoma Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, frá útlöndum á föstudag kom þannig nokkrum þingmönnum Samfylkingarinnar í opna skjöldu en Össur greiddi atkvæði gegn frávísunartillögunni. Össur sendi hins vegar tölvupóst fyrir brottför þar sem hann lét vita að hann gæti verið kominn heim á föstudag en skilaboðin virðast ekki hafa skilað sér til allra þingmanna flokksins. Þá hefur Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sem einnig greiddi atkvæði gegn tillögunni verið harðlega gagnrýnd fyrir setja Landsdómsmálið á dagskrá. Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar hefur lýst yfir vantrausti á Ástu vegna málsins og þá ætla að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn að styðja tillögu um Ásta víki þar á meðal Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Ásta segist hins vegar hafa farið að lögum í málinu. „Ég lét kanna það vel og fékk minnisblað frá yfirlögfræðingi Alþingis um að málið væri þinglegt," segir Ásta Ragnheiður sem telur að gagnrýnin byggi á mörgu leyti á misskilningi.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira