Innlent

Állinn nær allt að fjörutíu ára aldri

Kvörnin var brennd og brotin svo sést í sárið. Árin eru merkt með gulu en meðalvöxtur var aðeins 2 til 3 sentimetrar á ári.
mynd/veiðimálastofnun
Kvörnin var brennd og brotin svo sést í sárið. Árin eru merkt með gulu en meðalvöxtur var aðeins 2 til 3 sentimetrar á ári. mynd/veiðimálastofnun
Rannsóknir Veiðimálastofnunar á bjartál í Elliðaánum sýna að áll sem elst upp á Íslandi getur náð háum aldri. Álar sem Veiðimálastofnun rannsakaði í göngu niður Elliðaárnar voru allt að 40 ára.

Áll hrygnir í sjó, nánar tiltekið í Þanghafinu. Seiði þeirra synda með Golfstraumnum og berast að ströndum Evrópulanda, þar á meðal Íslands.

Seiðin, sem þá eru kölluð gleráll, ganga svo upp í ferskvatn og alast þar upp. Nokkuð virðist ganga af glerál upp í Elliðaárnar og líklega fer mest af honum upp í Elliðavatn og dvelur þar fram að kynþroska. Þegar kynþroska er náð fer állinn í göngubúning líkt og laxfiskar sem eru á leið til sjávar. Verður hann þá ljósari yfirlitum og kallast bjartáll.

Starfsmenn Veiðimálastofnunar rannsökuðu yfir 100 bjartála á tímabilinu 1999 til 2005 og skrásettu niðurgöngutíma, lengd, þyngd, kyn og aldur fiskanna. Kom þá í ljós að bjartáll á lengdarbilinu 53 til 103 sentimetrar var á aldursbilinu 13 til 40 ára gamall.

Allur állinn sem kom niður Elliðaárnar voru hrygnur en talið er að hængarnir haldi sig neðar í vatnakerfum eða á strandsvæðum í sjó.

Aðalgöngutími álsins er frá miðjum september til miðs nóvember. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×