Tilraunaborunum lokið á Bakka 15. ágúst 2012 12:10 Frá Bakka. mynd/ vilhelm.
Undanfarna daga hafa staðið yfir boranir í landi Húsavíkur vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar orkufreks iðnaðar á Bakka. Fjallað er um málið á fréttavefnum 640.is. Segir þar að verkfræðistofan Efla og Vegagerðin standi að þessum jarðfræðirannsóknum og er tilgangurinn að kanna undirlag fyrir annarsvegar verksmiðju þýska kísilmálmframleiðandans PCC svo og iðnaðarveg og göng sem tengja saman hafnarsvæðið og iðnaðarlóðina á Bakka. Vegagerð ríkisins stendur fyrir borunum vegna iðnaðarvegar og ganga undir Húsavíkurhöfða. En eftir á að grafa tvær til þrjár holur. Niðurstöður vegna þeirra eiga að liggja fyrir í september. Borunum á fyrirhugaðri lóð PCC er lolkið í bili en sveitarfélagið Norðurþing á í samningaviðræðum við PCC. Gert er ráð fyrir að fyrirtækinu verði úthlutuð um 20 hektara lóð innan skilgreinds iðnaðarsvæðis í sveitarfélaginu Norðurþingi og að orkunnar sem þarf til framleiðslunnar verði aflað frá virkjunum á háhitasvæðinu í Þingeyjarsýslum. Lóðinni hefur enn ekki verið úthlutað en Snæbjörn Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Norðurþingi, segir í viðtali við 640.is að viðræður gangi vel sem og viðræður um hafnaraðstöðu.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Fleiri fréttir Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Sjá meira