Gæti skilað inn 12,5 milljónum á ári 4. febrúar 2012 05:00 Um 1.800 aðgangspassar voru gefnir út fyrir starfsfólk Keflavíkurflugvallar á síðasta ári. Fréttablaðið/Pjetur
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra leggur til að fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli borgi um fimm þúsund krónur fyrir hverja bakgrunnsskoðun starfsmanna sinna. Talið er að fjöldi skoðana sé um 2.500 talsins sem skili um 12,5 milljónum króna á ársgrundvelli. Ráðherra mælti fyrir gjaldtökunni, sem felur í sér breytingu á lögum um loftferðir, á ríkisstjórnarfundi í gær. Veruleg fjölgun hefur orðið á útgáfu svokallaðra aðgangspassa fyrir starfsmenn Keflavíkurflugvallar og áhafnir flugfélaga vegna hertra reglna innan EES. Til að fá slíkan passa þarf lögreglan á Suðurnesjum að kanna bakgrunn viðkomandi starfsmanns og hefur þessi mikla fjölgun athugana það í för með sér að lögreglan hefur ekki lengur bolmagn til að sinna verkefninu nema því fylgi fjármagn. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er því lagt til að kostnaður greiðist af fyrirtækjum fyrir hverja bakgrunnsskoðun. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir fyrirtækið fagna tillögunni í ljósi þess að það finnist lausn á þeim töfum sem nú hafa orðið við útgáfu passanna. „Þessa vinnu þarf að manna og vinna kostar peninga,“ segir hann.- sv
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira