Það sem Íslendingar vilja sjá 3. mars 2012 14:00 Ragnar Bragason, annar frá vinstri í fremri röð, segir vonir sviðslistahópsins 16 elskendur standa til að sýningin sé vinaleg, áhugaverð og geri gagn. fréttablaðið/valli
Sviðslistahópurinn 16 elskendur frumsýnir á morgun Sýningu ársins, verk sem ætlað er að koma til móts við leikhúsþarfir landans. „Við erum leitandi hópur sem hefur verið að vinna með leikhúsformið og langaði að komast að því hvað Íslendingar vilja sjá í leikhúsi,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason úr sviðslistahópnum 16 elskendur sem frumsýnir á morgun, sunnudaginn 4. mars, verkið Sýning ársins í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Samkvæmt hópnum er um að ræða sviðslistaviðburð fyrir alla Íslendinga og leitast hann við að koma til móts við „leikhúsþarfir“ landans með sýningunni. Uppleggið er að sönnu óvenjulegt, en í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur leikhópurinn látið gera skoðanakönnun á því hvað Íslendingar vilja sjá á sviði. Sýning ársins er svo unnin beint upp úr niðurstöðunum sem fengust frá 1.400 manna úrtakinu. Ragnar segir ýmislegt hafa komið í ljós varðandi leikhúsóskirnar. Til að mynda kjósa þeir sem fylgja Framsóknarflokknum að málum helst að hafa leikara léttklædda á sviðinu, karlmenn vilja upplifa reiði í leikhúsi, kvenfólk kýs heldur ást, og reyndar ellilífeyrisþegar einnig, og fleira í þeim dúr. „Svo voru þátttakendur líka spurðir um eftirlætis leikara og leikkonur sínar. Í framhaldi af því fengum við þau Ilmi Kristjánsdóttur og Örn Árnason til liðs við okkur og þau leika í atriði sem allir vilja sjá. Einnig eru atriði sem enginn vill sjá samkvæmt rannsókninni, en í niðurstöðum hennar kom meðal annars fram að nokkur munur er á því hvernig lýsing hentar kynjunum. Konur vilja síst sjá litina gulan og appelsínugulan á sviðinu en karlar vilja ekki sjá bláan, fjólubláan og bleikan,“ útskýrir Ragnar. Hann bætir við að vonir hópsins standi til að sýningin sé vinaleg, áhugaverð og geri gagn, en hún er unnin í mikilli samvinnu allra meðlima hópsins eins og fyrri sýningar. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Sjá meira