Sérvalinn af Jóni Jónssyni eftir prufu 26. nóvember 2012 06:00 Svo gæti farið að Andri Bjartur fylgi Jóni Jónssyni til Bandaríkjanna þar sem sá síðarnefndi er á plötusamningi hjá Sony. Fréttablaðið/Pjetur "
Jón [Jónsson] hafði spurt kennara í FÍH hvort þeir vissu um trommara til að spila með honum og einhver nefndi mig. Ég fór svo í viðtal til Jóns og eftir það var ég boðaður á æfingu með hljómsveitinni," segir Andri Bjartur Jakobsson, trommuleikari. Hann var valinn til liðs við hljómsveit Jóns Jónssonar úr hópi tíu trommuleikara. Fjórir komust áfram í prufur og að lokum var Andri Bjartur fenginn til liðs við sveitina. "Ég hef aldrei farið í gegnum svona ferli áður til að fá að tromma með hljómsveit. Þetta var mjög prófessional hjá þeim," segir Andri, en hann er einnig trymbill hljómsveitanna Mammút og 1860. Fréttablaðið skýrði frá því í október að tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hefði landað plötusamningi við Sony eftir að hann heillaði útgáfustjórann og X Factor-dómarann L.A. Reid. Svo gæti farið að Andri Bjartur fylgi Jóni út til Bandaríkjanna þegar þar að kemur. "Mér skilst að það gæti farið þannig. Samningurinn var þó gerður við Jón einan, en ég veit að hann vill hafa hljómsveitina með sér og ég er partur af henni. En þetta kemur betur í ljós síðar." Ný hljómplata með Mammút er væntanleg í vor, en útgáfa hennar hefur gengið nokkuð brösuglega og hafa sumir gengið svo langt að segja bölvun hvíla á plötunni. "Platan átti upphaflega að koma út fyrir Iceland Airwaves en svo komu upp erfiðleikar í kringum upptökur og við urðum að fresta útgáfunni. Í kjölfarið ákváðum við að endurvinna plötuna alveg upp á nýtt og við reiknum með að hún komi út í mars eða apríl á næsta ári," segir Andri Bjartur að lokum. -sara@frettabladid.is
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Lífið Fleiri fréttir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Sjá meira