Lífið

Tónleikum Browns aflýst vegna mótmæla

Chris Brown hætti við fyrirhugaða tónleika í Guyana. Brown var dæmdur fyrir líkamsárás árið 2009.

Fyrirhuguðum tónleikum Chris Brown í Gvæjana hefur verið aflýst vegna ítrekaðra mótmæla. Þarlend kvenréttindasamtök auk stjórnarandstöðunnar hafa mótmælt tónleikunum vegna líkamsárásarinnar sem Brown var dæmdur fyrir árið 2009. Brown réðst á þáverandi kærustu sína, Rihönnu, og beitti hana grófu líkamlegu ofbeldi.

Tónleikarnir áttu að fara fram á annan í jólum en Brown hætti við þau áform eftir að hann fékk veður af mótmælunum. Samkvæmt tónleikahaldaranum, Hits & Jams Entertainment, tók Brown sjálfur þessa ákvörðun því honum þótti mótmælin óþægileg. Svipuð mótmæli fóru fram í Svíþjóð fyrir stuttu og var fólk hvatt til að sniðganga tónleikana.

Þann 25. ágúst árið 2009 var Brown fundinn sekur um að hafa beitt Rihönnu líkamlegu ofbeldi og í kjölfarið dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi, sex mánuði í samfélagsþjónustu auk meðferðar við ofbeldishegðun sinni. Þrátt fyrir dóminn beið ferill Browns ekki mikla hnekki og aðeins fáar útvarpsstöðvar hættu að spila tónlist hans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.