Lífið

Jólagjöfin á uppboð

Armbandsúr sem var í eigu Elvis Presley fer á uppboð í Englandi.
Armbandsúr sem var í eigu Elvis Presley fer á uppboð í Englandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Armbandsúr sem tilheyrði Elvis Presley er til sölu hjá bresku uppboðshúsi. Líklegt er að minnst 1,2 milljónir króna fáist fyrir úrið.

Armbandsúrið sem um ræðir fékk Presley í jólagjöf árið 1976 frá umboðsmanni sínum, Tom Parker. Presley lést í ágúst árið eftir. Skilaboð til söngvarans sjást enn grafin í úrið. "Elvis gleðileg jól þinn vinur Col. Tom Parker" stendur grafið í úrið.

Á sama uppboði verður einnig hægt að bjóða í lífstykki sem Madonna klæddist á tónleikaferðalagi árið 1990.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.