Lífið

Útskýra jólaorðin í dagatalinu

Skoppa og skrítla opna glænýtt dagatal með börnunum á stöð 2 í desember.
Skoppa og skrítla opna glænýtt dagatal með börnunum á stöð 2 í desember. fréttablað/vilhelm
"Við erum komnar í mikið jólaskap," segir Hrefna Hallgrímsdóttir, sem íslensk börn þekkja flest undir nafninu Skrítla. Þær vinkonur Skoppa og Skrítla eru nú í óðaönn að undirbúa glænýtt jóladagatal sem frumsýnt verður í desember á Stöð 2.

Þáttunum fylgir jóladagatal sem börnin geta eignast og hengt upp heima. "Í upphafi hvers þáttar opnum við glugga á dagatalinu okkar en þar leynist orð og lítil mynd. Orðin tengjast aðdraganda jólanna sem börnin heyra okkur fullorðna fólkið nota en þau skilja ekki endilega sjálf," útskýrir Hrefna. "Sem dæmi má nefna orð eins og kátína, eftirvænting, annríki og frímerki." Stöllurnar munu fá hjálp frá ýmsum vinum til að átta sig á merkingu orðanna og sumir eru ekki betur að sér en svo að þeir telja hirðingja einfaldlega vera einhvern sem fer reglulega í Sorpu til þess að hirða þar eitthvert drasl.

Þannig telja Skoppa og Skrítla niður dagana með börnunum en líkt og þau eru þær báðar mjög spenntar fyrir jólunum. "Við þurfum sífellt að minna hvor aðra á að vera þolinmóðar," segir Hrefna og bætir við: "Í lok hvers þáttar drögum við eitthvað upp úr jólapokanum okkar og smám saman verður jólalegra hjá okkur." Skoppa og Skrítla eiga heima baksviðs í leikhúsinu, eins og íslensk börn vita.

Þættirnir verða þrjár til fjórar mínútur að lengd og stöllurnar leitast við að höfða til jólabarna á öllum aldri. "Við reynum að hafa þættina þannig að yngstu börnin njóti þeirra, jafnvel þótt þau skilji ekki endilega það sem fram fer," segir Hrefna og bætir við að það sé líka mikilvægt að fullorðna fólkið geti haft gaman af þeim.

Líkt og áður skipar tónlist og dans stóran þátt hjá Skoppu og Skrítlu og enginn ætti að fara í jólaköttinn við að aðstoða þær í leitinni að sönnum kærleiksanda jólanna.

-hþó






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.