Útbúa fimm umslög fyrir Skúla 9. október 2012 00:00 Ingibjörg Birgisdóttir hannar umslög við fimm plötur Skúla Sverrissonar í samstarfi við Orra Jónsson.
Myndlistarkonan Ingibjörg Birgisdóttir og Orri Jónsson ætla að hanna umslög fyrir fimm plötur bassaleikarans Skúla Sverrissonar. Þau hafa þegar lokið við eitt, sem er við nýja plötu Skúla og saxófónleikarans Óskars Guðjónssonar, The Box Tree. Það er ansi óvenjulegt því hægt er að opna það þannig að það lítur út eins og landakort. „Þessi tónlist er svo opin og leiðir mann svo margt þegar maður hlustar þannig að okkur langaði að hafa umslagið þannig. Maður opnar þetta landakort og veit ekki hvað það er að sýna og hvert það getur leitt þig,“ segir Ingibjörg um umslagið, sem var silkiþrykkt. Ingibjörg og Orri störfuðu saman við gerð heimildarmyndarinnar Amma Lo-Fi. Eftir að Orri stjórnaði upptökum á plötu Skúla og Óskars var hann beðinn um að hanna umslagið líka og ákvað að fá Ingibjörgu með sér í verkið. Skúli var svo ánægður með útkomuna að þau munu hanna umslögin fyrir næstu fjórar plötur hans sem eru þegar tilbúnar og munu koma út með frekar stuttu millibili. „Við ætlum að reyna að halda einhverjum smá þræði,“ segir hún, spurð út í umslögin fimm. „Okkur langar að halda áfram á þessari braut og gera eitthvað óvenjulegt.“ Ingibjörg hefur hannað umslög frá árinu 2003. Meðal síðustu verka hennar er umslagið við nýjustu plötu Sigur Rósar, Valtara, og sólóplötu Jónsa, en þau eru systkini. Einnig hefur hún hannað fyrir Sin Fang og Sóleyju, auk þess sem hún leikstýrði tveimur myndböndum fyrir Sigur Rós við lögin Varúð og Ég anda. Jafnframt gerði hún myndband við lag Sóleyjar, Smashed Birds, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrr á árinu.- fb
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira