Lífið

Forbrydelsen 3 fær góðar viðtökur

Þriðja röð dönsku glæpaþáttanna Forbrydelsen hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda í Danmörku.
Þriðja röð dönsku glæpaþáttanna Forbrydelsen hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda í Danmörku.
Tæplega 1,7 milljónir Dana sátu límdar við skjáinn er fyrsti þáttur í þriðju röð Forbrydelsen var frumsýndur í Danmörku í síðustu viku. Glæpaþættirnir, með lögreglukonuna Söru Lund í fararbroddi, hafa notið gríðarlegra vinsælda og þriðju þáttaraðarinnar verið beðið með eftirvæntingu.

Danskir miðlar skiptast á að hrósa fyrsta þættinum í Forbrydelsen, Glæpnum eins og hann kallast á íslensku. Jyllands Posten gefur þáttaröðinni fimm stjörnur af sex mögulegum en gagnrýnandi Politiken sparar ekki stóru orðin þegar hann kallar þáttaröðina „fjandi góða“. Dagblaðið BT fullyrðir að fyrsti þátturinn bendi til þess að þessi röð verði sú besta af þeim öllum.

Gagnrýnandi Extra Bladet er sá eini sem ekki er jafn hrifinn, en hann gefur þáttaröðinni þrjár stjörnur af sex og segir of mikið upplýsingaflæði í fyrsta þættinum draga úr gæðunum.

Þetta er tilhlökkunarefni fyrir íslenska aðdáendur Forbrydelsen, en þættirnir vöktu mikla lukku hér á landi. Að sögn Sigrúnar Stefánsdóttur, fráfarandi dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, er verið að ganga frá kaupum á þriðju þáttaröðinni og verður hún sýnd á næsta ári, eða um leið og hægt er. 2,1 milljón Dana horfði á lokaþáttinn í fyrstu þáttaröðinni af Forbrydelsen en þrátt fyrir háar áhorfstölur og góða gagnrýni segja framleiðendur þáttanna að þessi þriðja röð sé sú síðasta.

- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.