Lífið

Þá kviknuðu neistar sem hafa blossað upp annað slagið

Erla Ragnarsdóttir
Erla Ragnarsdóttir
Hljómsveitin Dúkkulísurnar á þrjátíu ára afmæli og við erum búnar að vera að fagna því það sem af er ári, en hinn raunverulegi afmælisdagur er á morgun, því hún var stofnuð 10. október 1982,“ segir Erla Ragnarsdóttir, söngkona Dúkkulísanna, um tilefni afmælishátíðarinnar sem haldin verður á Café Rosenberg annað kvöld. "Við ætlum að fagna afmælinu með allsherjargleði, rifja upp söguna og gömul lög. Svo erum við með litla sýningu þar sem við sýnum ýmislegt frá ferlinum; kjóla, mastera, myndir, plaköt, hljóðfæri og svona eitt og annað smálegt.“

Þið hafið verið að spila villt og galið allt þetta ár, eða hvað? „Já, þetta hófst allt með Aldrei fór ég suður um páskana. Við komum saman fyrir það og æfðum eins og vitleysingar, keyrðum svo saman vestur og það var voða gaman hjá okkur. Þetta kveikti neista sem hafa verið að blossa upp annað slagið síðan og við erum búnar að vera að spila úti um allt land.“

Fyrsta lag Dúkkulísanna sem sló í gegn var Pamela í Dallas, hvað er hún orðin gömul blessunin? „Pamela kom út 1984, tveimur árum eftir að við stofnuðum hljómsveitina, en í millitíðinni höfðum við unnið Músíktilraunir 1983 og fengið plötusamning í kjölfarið.“

Er hljómsveitin enn í þeirri mynd sem hún var 1982? „Eiginlega. Reyndar erum við orðnar sjö í dag en vorum fimm í upphafi. Upphaflegi gítarleikarinn hætti veturinn 1983 en fljótlega upp úr því fengum við nýjan gítarleikara sem er með okkur enn í dag. Hljómborðsleikarinn hætti líka og við fengum nýjan, en svo kom sú fyrsta til baka og nú eru þær tvær. Að lokum slóst svo slagverksleikari í för með sveitinni.“

Er eitthvað fleira fyrirhugað áður en afmælisárið er á enda runnið? „Já, já. Við höfum verið að fá blikk frá ýmsum stöðum og það er ýmislegt í farvatninu. Við munum til dæmis spila í tengslum við Airwaves og svo erum við búnar að vinna nýtt lag sem vonandi kemur út á afmælisdaginn. Við erum ekkert hættar, langt frá því.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.