Lífið

Umkringd fáklæddum karlmönnum

MYNDIR / COVER MEDIA
Leikkonan Rebel Wilson hefur komið eins og stormsveipur inn í bransann síðustu mánuði. Hún er í viðtali við tímaritið Details og situr fyrir á ansi skemmtilegri mynd þar sem hún er umkringd hálfnöktum karlmönnum.

Rebel var stjarna í heimalandi sínu Ástralíu áður en hún sló í gegn í Bandaríkjunum.

"Ameríka er stærri markaður og þar er meiri samkeppni. Ég var með sjálfstraust eftir að hafa skrifað eða leikið í þrettán mismunandi þáttum í Ástralíu. Ég hef alltaf verið með bandaríska kímnigáfu," segir Rebel í viðtali við blaðið.

Rebel er fyndin - það má hún eiga.
Rebel býr í Kaliforníu ásamt grínistanum Matt Lucas en þau léku einmitt saman í epísku grínmyndinni Bridesmaids.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.