Sprengjuógn við Hverfisgötu - atburðarásin frá upphafi 31. janúar 2012 11:22
Svo virðist sem sprengja hafi sprungið í portinu að Hverfisgötu 4, sem er fyrir aftan Stjórnaráð Íslands, um klukkan hálf átta í morgun. Óstaðfestar fregnir herma að það hafi verið starfsmaður ráðuneytisins sem heyrði sprenginguna og að vegfarandi hafi tilkynnt um hana. Í kjölfarið var lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra ásamt sprengjusveit Landhelgisgæslunnar kölluð til. Fannst þá torkennilegur hlutur í kassa í portinu. Utan á húsunum var búið að hengja upp plaköt eða spjöld með pólitískum skilaboðum, en ekki er ljóst hvað stóð á þeim. Þess má geta að skrifstofa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er til húsa þar sem sprengjan sprakk. Klukkan níu í morgun mætti ríkisstjórnin á fund. Ríkislögreglustjóri útskýrði þá ástandið fyrir ríkisstjórninni og þótti ekki ástæða til þess að rýma stjórnaráðshúsið. Á milli níu og tíu í morgun var svo sprengjuleitarvélmenni sent á vettvang til þess að rannsaka torkennilega hlutinn. Þá var lögreglan búin að loka Hverfisgötunni frá lækjargötu upp að Ingólfsstræti. Þá fóru einnig lögreglumenn í innanríkisráðuneytið og skimuðu ráðuneytið, en þar var einnig búið að hengja upp samskonar plaköt og finna mátti í kringum leifar sprengjunnar. Vísir ræddi við upplýsingafulltrúa innanríkisráðuneytisins í morgun, en hann sagði enga ógn steðja að ráðuneytinu og að starfsfólk þess væri hið rólegasta vegna málsins. Skrifstofur ríkissaksóknara voru einnig rýmdar, en þau eru til húsa að Hverfisgötu 6. Það var svo hálfellefu sem sprengihleðslu var skotið í hlutinn. Í ljós kom að ekkert sprengiefni var að finna í honum. Sprengjuleitarmaður í hlífðarbúningi skoðaði svo leifar sprengjunnar eins og sést á innfelldu myndinni. Ekki er vitað hverjir voru að verki en það er ljóst að verknaðurinn hefur pólitískan blæ yfir sér. Ekki hefur náðst í Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, en hann var á vettvangi í morgun.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira