Heimavarnarliðið sver af sér sprengjumálið 31. janúar 2012 16:34 Lögreglan ber út heimavarnarliðið í Breiðagerði fyrr í mánuðinum. „
Það var enginn úr okkar hópi sem kom að þessu," segir Páll Heiðar Magnússon Aadnegar, sem er í Heimavarnarliðinu svokallaða, en uppi var sú kjaftasaga að það væri einhver meðlimur félagskaparins sem hefði búið til sprengju og sprengt á Hverfisgötunni snemma í morgun. Misskilningurinn var til kominn vegna pólitískra veggspjalda sem hengu víða á húsum í kringum sprengjuna. Á plakatinu má finna persónugreinanlegt fólk og á því miðju stendur. „Eftirlýst útburðarhyski". Svo er óskað eftir upplýsingum um fólkið sem finna má á veggspjaldinu, sem var meðal annars hengt á innanríkisráðuneytið í nótt. Svo virðist sem þetta tvennt tengist ekki. í það minnsta kannast Páll Heiðar ekki við tengslin, þó hann játi að hann þekki lágvaxna og feitlagna menn. „Ég þekki fullt af þannig mönnum," segir hann og hlær. Spurður út í veggspjaldið, og hvað félagsskapurinn hyggst gera við upplýsingarnar segist Páll ekki vera með það á hreinu. Fólkið á veggspjaldinu er talið hafa komið að útburði í Breiðagerði 7 þann 17. Janúar 2012. Spurður hvort þessir aðilar megi eiga von á hefndaraðgerðum félagsskaparins svarar Páll Heiðar: „Þeir eiga allavega ekki von á sprengju." Þegar fréttastofa hafði samband við Persónuvernd vegna veggspjaldsins fengust þau svör að þeim hefði ekki borist kvörtun enn sem komið er. Hitt væri að ef um persónugreinanlegar upplýsingar sé að ræða, þurfi að kanna hvort þær standist lög.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira