Eyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju Kristján Már Unnarsson skrifar 31. janúar 2012 19:07
Gjaldeyristekjur sem Vestmannaeyingar skapa á tíu vikna loðnuvertíð stefna í að verða álíka miklar og kostnaður við bæði Landeyjahöfn og nýjan Herjólf. Skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason, sést á myndum Gísla Óskarssonar, sem sýndar voru í fréttum Stöðvar 2, sigla inn til Vestmannaeyja síðastliðið laugardagskvöld með tólfhundruð tonn af loðnu en skipið er síðan aftur væntanlegt í nótt með annað eins. Stóraukinn loðnukvóti þýðir mikla búbót fyrir Eyjarnar. Þar er allt komið á fullan snúning og bátarnir koma nú inn í bunum til að landa, segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. Hann segir að mesta áherslan sé á að vinna lýsi og mjöl, sem gefi mestar tekjur um þessar mundir, en þegar nálgist hrygningu taki við hrognavinnsla og frysting. Þeir markaðir séu hins vegar þyngri, sérstaklega í hrygnunni, en þeir muni þó slást á hrognamarkaði, segir Binni í Vinnslustöðinni, eins og hann er jafnan nefndur í Eyjum. Hann segir þetta verða bræðsluvertíð að stórum hluta, enda sé verðmæti þeirra afurða nú tvöfalt til þrefalt hærrra en fyrir nokkrum árum. Fyrirtæki Eyjamanna, Ísfélagið og Vinnslustöðin, eru með um þrjátíu prósent loðnukvótans en Ísfélagið vinnur hluta aflans á Þórshöfn. Sigurgeir Brynjar spáir því að af 30 milljarða króna búhnykk þjóðarbúsins vegna loðnuvertíðar verði fimm til átta milljarðar til í Vestmannaeyjum á næstu tveimur mánuðum. Margir hafa býsnast yfir kostnaði við Landeyjahöfn og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Átta milljarða króna kostnaður fyrir höfn og ferju er þó álíka og vænta má að Eyjamenn skapi í gjaldeyristekjur af loðnuvertíð á nokkrum vikum og virkar sem smáræði miðað við gjaldeyrisöflun Eyjmanna á ári þegar þorskurinn, makríllinn og allar hinar tegundirnar eru lagðar saman. Binni segir verðmæti útfluttra sjávarafurða frá Vestmannaeyjum á bilinu 30-35 milljarðar króna á ári, eða um 15% af útflutningstekjum sjávarútvegs. Það segir hann mikið miðað við 4.200 manna samfélag.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira