Innlent

Stefna að því að komast til Hafnar í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hjólreiðarmennirnir stefna að því að komast til Hafnar í Hornafirði í dag.
Hjólreiðarmennirnir stefna að því að komast til Hafnar í Hornafirði í dag.
Slökkviliðsmennirnir sem lögðu af stað í hjólaferð hringinn í kringum landið á laugardagsmorgun stefna að því að komast til Hafnar í Hornafirði í dag. Slökkvilið Fjarðarbyggðar tók vel á móti þeim í gærkvöldi með 3 grilluð lambalæri og tilbúið gufubað sem kom sér vel því þó ferðin hafi almennt gengið að óskum er áreynslan gífurleg og upp hafa komið ýmis álagsmeiðsli.

Hópurinn er að sjálfsögðu sífellt hungraður í hjólaferðinni. „Ef þeir sjá eitthvað þá éta þeir það. Þeir eru hættir að spyrja hvað það er", sagði Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri um stöðu mála. Hver mannanna innbyrðir um átta þúsund kaloríur á dag.

Í hópnum er m.a. læknir, sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn og íþróttaþjálfari, enda ferðin samstarfsverkefni Landsspítalans, slökkviliðsins, RKÍ og TM. Markmið með ferðinni er að vekja athygli á nauðsyn þess að hjólreiðamenn noti hjálma, bæði börn og fullorðnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×