Allsherjarverkfall lamar Belgíu 30. janúar 2012 12:07 Mynd/AP
Nánast allt athafnalíf liggur nú niðri í Belgíu vegna allsherjarverkfalls sem hófst þar í gærkvöldi. Aðgerðirnar hafa áhrif á fund leiðtoga Evrópusambandins sem haldinn verður í höfuðborginni síðdegis. Þrjú stærstu verkalýðsfélög landsins standa fyrir verkfallinu og nær það bæði til opinberra starfsmanna og þeirra sem vinna í einkageiranum. Með þessu mótmæla Belgar fyrirhuguðum niðurskurði í ríkisútgjöldum en stjórnvöld þar í landi áætla að ná fram 12 milljarða evra niðurskurði á þessu ári. Opinberar samgöngur eru lamaðar og hafa þær áhrif á samgöngur nærliggjandi landa þar sem ferðum háhraðalesta, á borð við Eurostar sem gengur á milli Lundúna og Parísar með viðkomu í Brussel, hefur verið aflýst. Útlit er fyrir að ekkert flug verði um Charleroi flugvöll í suðurhluta höfuðborgarinnar en þangað flýgur lággjaldaflugfélagið Ryanair meðal annarra. Alþjóðlegi flugvöllurinn í Brussel virðist þó ekki ætla að verða fyrir barðinu á aðgerðunum en nokkur flugfélög hafa þó ákveðið að beina flugferðum sínum til nálægra landa. Þá er fjöldi belgískra skóla lokaður í dag og hið sama á við verslanir. Leiðtogar Evrópusambandsins hittast í Brussel í dag þar sem þeir ræða meðal annars skuldavanda Grikkja, fjárlög ríkjanna, atvinnuleysi og hagvöxt. Verkfallið setur án efa strik í reikning leiðtoganna en þeir sem hann sitja voru beðnir um að mæta klukkan hálf sex í morgun þrátt fyrir að fundurinn hefjist ekki fyrr en klukkan eitt í dag. Þá verður belgíski flugherinn fenginn til að aðstoða fundarmenn við að komst frá borginni. Það er engin tilviljun að boðað hafi verið til verkfalls á fundardegi leiðtoganna en Belgar eru ósáttir við þær kröfur sem Evrópusambandið setti belgískum stjórnvöld um niðurskurð. Tæp tuttugu ár eru liðin frá því að Belgar fóru síðast í allsherjarverkfall.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira