Lögmaður hermdi á niðurlægjandi hátt eftir fórnarlambi 30. janúar 2012 14:53 Jón Egilsson. Mynd / / Stefán Karlsson
Hæstaréttarlögmanninum Jóni Egilssyni var í dag gert að greiða 100 þúsund krónur í réttarfarssekt þegar hann flutti mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta er í annað skiptið sem hann er sektaður fyrir slíkt brot. Málið sem um ræðir er skaðabótamál karlmanns af erlendum uppruna gegn tveimur mönnum sem réðust á hann þegar hann var að störfum í verslun 10-11 í Kópavogi árið 2006. Mennirnir voru síðar ákærðir og dæmdir fyrir árásina í Héraðsdómi Reykjaness. Fórnarlambið hélt því fram að afleiðingar líkamsárásarinnar, líkamlegar og andlegar, hefðu verið mun alvarlegri en þau gögn sem byggt hafi verið á í sakamálinu, einkum vegna þess höfuðhöggs sem hann hafi orðið fyrir af völdum annars mannsins. Þeim manni var gert að greiða fórnarlambinu rúmlega þrjár milljónir króna en skjólstæðingur Jóns var aftur á móti sýknaður. Svo segir í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að í málflutningsræðu sinni hermdi Jón Egilsson á niðurlægjandi hátt eftir fórnarlambinu, sem var viðstaddur þinghaldið ásamt aðstandendum sínum. Þannig á Jón að hafa leikið fórnarlambið kjökrandi að hringja í lögmann sinn vegna málsins. Svo segir orðrétt í úrskurði dómarans: „Hegðaði hann [Jón Egilsson] sér þannig á ósæmilegan hátt gagnvart stefnanda og misbauð virðingu dómsins. Verður lögmanninum gerð sekt vegna þessarar háttsemi eftir e. og f. liðum 1. mgr. 135. gr. laga um meðferð einkamála sem ákveðst 100.000 kr. og renni í ríkissjóð." Árið 2005 staðfesti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem honum var einnig gert að greiða réttarfarssekt. Jón áfrýjaði úrskurði héraðsdóms sem sektaði hann fyrir óvirðingu. Þá sagði í niðurstöðu Hæstaréttar: „Af hljóðupptöku frá aðalmeðferð málsins í héraði er ljóst að verjandinn hefur komið ósæmilega fram í dómsal, eins og nánar er skýrt í forsendum héraðsdóms, og sýnt réttinum fádæma óvirðingu."
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira