Ályktun um Píkusafn er satíra 27. september 2012 07:00 „
Ályktuninni fylgir mikil alvara. En hún er til komin vegna hugmyndar bæjarstjórnar um villidýrasafn, sem okkur finnst fáránleg. Það var spurning um að toppa vitleysuna," segir Kristín Pálsdóttir, ritari Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ. Flokkurinn samþykkti ályktun í vikunni um að láta reisa Píkusafn í bænum, í anda Reðasafnsins. Að sögn bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar var ályktunin þó meira ádeila en nokkuð annað. „Þetta er ekki á stefnuskránni hjá okkur, en þetta er bráðsniðug hugmynd," segir Jón Jósef Bjarnason bæjarfulltrúi. Í ályktuninni segir meðal annars: „Ónefnt sláturhús hefur þegar veitt vilyrði fyrir fimm gimbrapíkum, fullunnum til sýningar." Kristín segir þetta vera hluta af satírunni sem ályktunin sé. „Þetta er háðsádeila," segir hún. „Á maður að fylgja leikreglum eða á maður stundum líka að prófa eitthvað pönk?" Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti í ágúst að láta reisa villidýrasafn í bænum. Íbúahreyfingin vill lýðræðislega íbúakosningu um málið áður en lengra er haldið. - sv
Fréttir Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira