Innlent

"Með verri veðrum sem hafa komið“

Hér sést hvernig tréð við Miðstræti rifnaði upp með rótum.
Hér sést hvernig tréð við Miðstræti rifnaði upp með rótum. Mynd/ Páll V. Bjarnason
„Það eru svona 35 metrar á sekúndu í mestu vinhviðunum í Reykjavík og við löbbum tvo metra á sekúndu - svo þú getur rétt ímyndað þér. Það er bara snælduvitlaust veður," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, veðurfræðingur.

Mikið óveður gengur nú yfir landið og hafa mestu vindhviður farið upp í 55 metra á sekúndu. Í Reykjavík mælast mestu vindhviður 35 metrar á sekúndu en meðal vindhraðinn er á milli 20 og 30 vindstiga. „Fárviðri er efsta stig, það eru 33 metrar á sekúndu og stormur er 21 metri á sekúndu," segir Siggi.

„Þetta er náttúrulega með verri veðrum sem hafa komið. Því er ekki að leyna kortin eru búin að vera sérdeilis ljót fyrir þennan dag og á morgun. Það er allt landið lagt undir. Á suðvesturhorninu er snjólaust, en til dæmis í Öræfasveitum er snarvitlaust veður og mikil snjókoma. Þar eru vindhviður upp í 50 metra á sekúndu," segir Siggi.

Almannavarnir hvöttu foreldra til að ná í börnin sín í skólann í dag, og tekur Siggi undir það. „Þú stendur ekki í svona veðri og þá allra síst börn. Ég myndi huga að því, það er allur dagurinn sem fer í þetta."

Spurður hvort að hægt sé að bera óveðrið hér á landi saman við fellibylinn Sandy, sem gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna í vikunni, segir hann það ekki hægt. „Hér eru meðalvindhviðurnar 20 til 30 metrar á sekúndu en í Sandy voru vindhviðurnar um 40 til 42 sekúndur. En það má segja að eðli og orsakir séu allt aðrar í þessum tveimur verðrum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×