Innlent

Samhæfingarmiðstöðin virkjuð: Takið viðvaranir alvarlega

Þessa mynd tók Ingvi Lár við Ánanaust og kann Vísir honum góðar þakkir.
Þessa mynd tók Ingvi Lár við Ánanaust og kann Vísir honum góðar þakkir.
Samhæfingarmiðstöð almannavarna hefur verið virkjuð vegna fárviðris sem gengur nú yfir landið. Í samtali við Víði Reynisson hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra kemur fram að aðgerðir björgunaraðila sé gríðarlega umfangsmikið.

„Við erum að taka allt landið út, og athuga hvernig ástandið er. Núna er ástandið samt verst að því er virðist á höfuðborgarsvæðinu," segir Víðir en hann hvetur fólk meðal annars til þess að halda sig inni. Björgunarsveitir hafa staðið í ströngu á höfuðborgarsvæðinu í allan dag. Meðal annars hafa hátt í tuttugu einstaklingar þurft að leita á spítala eftir þeir beinlínis tókust á loft.

En er ástandið verra á einum stað heldur en öðrum?

„Allt landið er undir. Núna erum við að einbeita okkur að fimmtán stöðum utan höfuðborgarsvæðisins," segir Víðir. „Verk björgunarsveitanna eru komin yfir 300 í dag," segir Víðir þegar hann áréttar alvarleika ástandsins.

Spurður hvort hann vilji koma skilaboðum áleiðis til almennings segir Víðir: „Við hvetjum fólk til þess að fylgjast vel með fréttum og taka viðvaranir alvarlega. Það er ofsaveður að ganga yfir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×