Tveir menn sáust forða sér frá húsinu 29. febrúar 2012 03:30 Íbúar hússins við Hverfisgötu í Hafnarfirði eru meðlimir í vélhjólagenginu Outlaws og rannsakar lögreglan nú málið. Fréttablaðið/stefán
lögreglumálLögreglan rannsakar nú tilraun til íkveikju í Hafnarfirði á mánudag þar sem eldsprengju var kastað á íbúðarhús tveggja meðlima vélhjólagengisins Outlaws. Vitni sá tvo menn forða sér af vettvangi í kjölfar atviksins. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir enga hafa verið yfirheyrða eða handtekna vegna málsins. „Þetta er litið alvarlegum augum og hefði getað skapað almannahættu ef kviknað hefði í,“ segir hann. „Öllum möguleikum er haldið opnum, allt verður kannað og allt rannsakað sem hægt er að rannsaka.“ Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir rannsóknina byggjast að vissu leyti á því að íbúar hússins séu meðlimir í vélhjólagengi. „Við erum að reyna að átta okkur á því hvers vegna þessi atburðarás átti sér stað,“ segir hann. „Eðlilega lítum við til þeirra manna sem þarna búa og þeirra sem standa að baki.“ Þessi tegund sprengju er oft kölluð Molotov-kokteill – glerflaska er fyllt með eldfimum vökva og henni lokað með klúti vættum í vökvanum. Húsið skemmdist ekki mikið í brunanum, en lögreglumaður á frívakt átti leið hjá stuttu eftir að kviknaði í og náði að slökkva eldinn. Enginn var í húsinu þegar sprengjunni var kastað, en lögreglan er búin að taka skýrslu af íbúunum. - sv
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira