Ekki greitt með Katopril, Ramil, Lopress, Presmin og Valpress 29. febrúar 2012 15:55
Vegna mikillar verðlækkunar á blóðþrýstingslyfinu Enalpril frá Lyfis munu nokkur algeng blóðþrýstingslyf, sem nú eru með almennri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga, falla út fyrir þann ramma sem greiðsluþátttakan miðast við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Sama máli gegnir um tiltekin magasárslyf (prótónpumpuhemla). Til að tryggja greiðsluþátttöku sjúkratrygginga þurfa læknar að sækja um lyfjaskírteini fyrir sjúklinga sem þurfa á umræddum lyfjum að halda. Svo segir í tilkynningu ráðuneytisins:* „Verðlækkunin lækkar útgjöld ríkisins og kemur jafnframt til góða sjúklingum sem nota þær tegundir lyfja sem lækka í verði. Lækkunin á Enalpril nemur á bilinu 28–40% eftir stærð pakkninga. Blóðþrýstingslyfin sem þar með falla út fyrir rammann sem greiðsluþátttaka sjúkratrygginga miðast við eru Katopril, Ramil, Lopress, Presmin og Valpress. Magasárslyfin frá Lyfis sem lækka í verði 1. mars eru Esomeprazole og Omeprazol og nemur lækkunin á bilinu 6–66% eftir stærð pakkninga. Lyfin sem við það falla út fyrir greiðsluþátttökurammann eru Lanser, Rabeprazol og Pariet.Reglur um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga Árið 2009 voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi vegna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sjúklinga. Almenn greiðsluþátttaka sjúkratrygginga fyrir einstök lyf var bundin við ákveðinn ramma þar sem tilgreindur var hlutfallslegur munur á lægsta og hæsta verði lyfs sem áskilinn var fyrir því að sjúkratryggingar tækju þátt í greiðslu þess. Markmiðið var að beina lyfjaávísunum lækna fyrir sjúklinga sína að hagkvæmustu lyfjunum þegar verkun þeirra er sambærileg og verkun dýrari lyfja. Áskilið var að teldist meðferð með þessum lyfjum ófullnægjandi eða hefði í för með sér aukaverkanir gætu læknar sótt um lyfjaskírteini og tryggt þannig sjúklingi niðurgreiðslu vegna dýrara lyfs sem honum er nauðsynlegt. Almenn greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna blóðþrýstingslyfja miðast við að munur á lægsta og hæsta verði þessara lyfja megi ekki vera meiri en 150%. Sem fyrr segir geta læknar sótt um lyfjaskírteini fyrir sjúklinga sem þeir telja að þurfi nauðsynlega á lyfjum að halda sem falla utan greiðsluþátttökurammans. Munur á lægsta og hæsta verði magasárslyfja sem almenn greiðsluþátttaka sjúkratrygginga miðast við er 20%.Breytingarnar hafa skilað miklum ávinningi Þær breytingar sem gerðar voru á reglum um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði árið 2009 hafa skilað verulegum ávinningi fyrir hið opinbera og sjúklinga. Sem dæmi má nefna að heildarkostnaður Sjúkratrygginga Íslands lækkaði á einu ári vegna blóðþrýstingslyfja um 60%, úr 685 milljónum króna í 277 milljónir króna. Ástæðan var tvíþætt því breytingarnar leiddu ekki aðeins til aukinnar notkunar hagkvæmari lyfja heldur urðu til þess að lyfjafyrirtæki lækkuðu verð á mörgum blóðþrýstingslækkandi lyfjum og nam lækkunin allt að 70–75%."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira