Illfært í húsagötum - 35 tæki vinna við ruðning 26. janúar 2012 09:38 Ófærð.
Vegna snjóþyngsla er víða illfært í Reykjavík, einkum í húsagötum og á bílastæðum. Klukkan fjögur í nótt voru um 35 tæki Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum farin af stað til snjóhreinsunar samkvæmt tilkynningu frá borginni. Áherslan er sem fyrr á helstu umferðaræðar og gönguleiðir, einkum þær sem liggja að biðstöðvum strætó. Einnig verður snjó rutt af bílastæðum og gönguleiðum við skóla, leikskóla, sundlaugar og aðrar stofnanir borgarinnar. Unnið verður í dag áfram með öllum tiltækum mannskap og tækjum í borginni í samræmi við viðbragðáætlanir Reykjavíkurborgar. Ökumenn eru beðnir um leggja bílum sínum þannig að þeir séu ekki fyrir snjóruðningstækjum. Illa staðsettir bílar hafa tafið hreinsunarstarf og hafa snjóruðningstæki þurft frá að hverfa eða skilja götuna eftir hálfrudda. Í gærkvöldi voru um 37 bílar á Reynisvatnsvegi og þá hafa ruðningstæki átt erfitt með að komast um Hraunbæ vegna bíla sem lagt er við veginn þar sem bílastæði eru illfær. Snjóhreinsun á bílastæðum við fjölbýlishús er í verkahring viðkomandi húsfélags og íbúa. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru í góðu sambandi við lögreglu, slökkvilið og Neyðarlínuna vegna öryggismála. Beiðnir frá viðbragðsaðilum fá sérstakan forgang hjá þeim sem stýra snjóhreinsuninni. Unnið er samkvæmt forgangsáætlun jafnframt því sem brugðist er við ábendingum íbúa. Tekið er við ábendingum frá íbúum um snjóhreinsun í síma 411 11 11 og á netfangið upplysingar@reykjavik.is. Símaver Reykjavíkurborgar kemur ábendingum með skilvirkum hætti til Framkvæmda- og eignasviðs.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Sjá meira