Innlent

Tafir á dreifingu Fréttablaðsins

Dreifing Fréttablaðsins hefur farið úr skorðum í dag enda ófærðin með eindæmum mikil í höfuðborginni og í nágrannasveitarfélögum. Hannes Hannesson framkvæmdastjóri Póstdreifingar sem sér um að dreifa blaðinu segir að ástandið sé mjög slæmt á öllum göngustígum á höfuðborgarsvæðinu. „Borgar og bæjaryfirvöld eru einfaldega ekki að sinna mokstri nægilega vel," segir Hannes og bendir á að þegar fari að blása í skaflana sem safnast hefur í, eins og gerði í nótt, þá verði einfaldlega allt ófært.

Það geri störf blaðburðarmanna og annarra sem sinna slíkri þjónustu nær ómögulegt. „Í nótt fór allur útburður úr lagi eða stór hluti," segir Hannes. Bílar hafi verið víða fastir auk þess sem sumir hafi einfaldlega ekki treyst sér út í ófærðina með blaðabunkana. Sumir komust þó leiðar sinnar en annarsstaðar verður blaðið mun seinna á ferðinni en venjulega.

Hvað varðar dreifingu á landsbyggðinni fór hún einnig úr skorðum. Bíllinn sem átti að flytja blöð til Akureyrar er fastur á Holtavörðuheiði og dreifing á Reykjanesið fór einnig úr skorðum sökum ófærðar á Reykjanesbraut. Hannes biður fólk því vinsamlegast um að sýna ástandinu skilning.

Þeir sem vilja geta lesið Fréttablaðið á rafrænu formi hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×