Yfirvofandi uppsagnir hjá Vinnumálastofnun 26. janúar 2012 14:11 Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Á félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær, að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar, kom fram mikil óánægja er á meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga. Í tilkynningu frá SFR segir að starfsmenn Vinnumálastofnunnar hafi þungar áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd og segja m.a. í ályktun sem fundurinn sendi frá sér með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að setja aukafjármuni upp á 300 milljónir í slíkt tilraunaverkefni í stað þess að efla starf stofnunarinnar og starfsfólk hennar. Á fundinum voru einnig rædd launamál starfsmanna, en þeir mótmæla harðlega þeirri launastefnu sem rekin er og segja m.a. að samanburður við aðrar ríkisstofnanir sýni að launasetning starfsmanna Vinnumálastofnunar víki verulega frá því sem aðrir starfsmenn ríkisins búa við. Starfsmenn Vinnumálastofnunar hafa búið við langvarandi og óeðlilegt vinnuálag en starfsmenn hafa í allmörg ár krafist launaleiðréttingar án sýnilegs árangurs.Hér fyrir neðan má lesa ályktunina:Ályktun frá félagsfundi félagsmanna SFR stéttarfélags haldinn 25. janúar 2012á Vinnumálastofnun, Kringlunni 1.„Starfsfólk Vinnumálastofnunar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis þar sem gert er ráð fyrir að stéttarfélög taki að sér vinnumiðlun og ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur í stað ráðgjafa Vinnumálastofnunar.Starfsfólki Vinnumálastofnunar finnst með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að setja aukafjármuni upp á 300 milljónir í slíkt tilraunaverkefni í stað þess að efla starf stofnunarinnar og starfsfólk hennar. Varla verður annað séð en að markmið tilraunaverkefnisins sé fyrst og fremst að brjóta niður stofnunina og þá góðu uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað.Bent er á að starfssemi Vinnumálastofnunar hefur eflst mikið undanfarin þrjú ár, starfsmannafjöldi hennar hefur farið úr 100 í 160 manns og enn er þörf á að bæta þar við.Starfsfólk Vinnumálastofnunar um allt land hefur staðið í eldlínunni og tekist á við nýjan veruleika í íslensku samfélagi, sem ört vaxandi atvinnuleysi hefur skapað með tilheyrandi álagi og erfiðleikum. Á þessum tíma hefur skapast dýrmæt þekking og reynsla meðal starfsmanna sem hætta er á að muni glatast ef af fyrirhuguðum breytingum verður.Það eru kaldar kveðjur sem stjórnvöld senda starfsfólki Vinnumálastofnunar því framkvæmd þessi mun einungis skila ráðgjöfum og öðru starfsfólki Vinnumálastofnunar minnkandi starfsöryggi og uppsögnum. Slíkt er með öllu óásættanlegt."
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sjá meira