Virkni lyfs kemur í ljós mun fyrr en áður 14. febrúar 2012 08:00 Dr. Kristinn mun nýta styrkinn til að þróa nýja tækni við lyfjarannsóknir.
Íslenskur vísindamaður, doktor Kristinn B. Gylfason, er einn þriggja vísindamanna við Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi, sem hlotið hafa 3,8 milljónir sænskra króna í styrk frá Sænska rannsóknaráðinu, jafngildi um 70 milljóna íslenskra króna, til þess að þróa nýja tækni við lyfjarannsóknir. Með nýju tækninni, svokallaðri míkró- og nanótækni, verður hægt að sjá hvernig hver einstök fruma bregst við lyfjagjöf, að sögn Kristins. „Núna er lausn með þúsundum frumna hellt í tilraunaglas og lyfi blandað út í. Flúrljómandi merki lýsir upp lausnina ef frumur sýna viðbragð. Ókosturinn við þessa aðferð er sá að aðeins er hægt að sjá hvernig meðalfruman bregst við. Með nýrri tækni festum við frumurnar í miðju skynjara og mælum viðbrögðin þegar lyfið kemur að frumunni. Þá er hægt að sjá viðbrögð hverrar frumu og lyfjafyrirtækin geta skilið miklu fyrr hvernig lyfin virka,“ segir Kristinn. Hann tekur fram að sé mikill mismunur á viðbrögðum frumnanna þýði það að lyfið sé ekki mjög gott. Nú sé erfitt að sjá slíkt þar sem aðeins sjáist viðbrögð meðalfrumunnar. „Með okkar rannsókn er hægt að sjá hvort allar frumur bregðast eins við eða hvort um breytileika sé að ræða. Þetta er hægt að gera án þess að blanda inn þriðja efninu en þegar það er gert er alltaf hætta á að það trufli tilraunina.“ Kristinn segir markmiðið vera að reyna að draga úr sívaxandi kostnaði við lyfjaþróun sem sé mikið vandamál.- ibs
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira