Skyndibílar verða jafnvel komnir á göturnar í haust 14. febrúar 2012 06:30 Finnur Sveinsson
Bílaleigur, olíufélög og bílaumboð funduðu með fyrirtækjum sem hafa áhuga á að kaupa þjónustu skyndibíla. Aðstandendur verkefnisins segja viðbrögðin hafa verið jákvæð og bílaleigur segja verkefnið spennandi. „Fólk er tilbúið í að skoða verkefnið betur og ég hef trú á að þetta muni ganga upp,“ segir Finnur Sveinsson, sérfræðingur hjá Landsbankanum og einn af aðstandendum verkefnis um skyndibílakerfi, aðspurður um fund sem nokkur stórfyrirtæki og stofnanir áttu fyrir helgi með aðilum í bílaleigugeiranum, bílaumboð og olíufélög um að koma á þess háttar kerfi hér á landi. Framkvæmdastjóri Hertz á Íslandi segir að gangi allt eftir gæti slíkt verið komið til framkvæmda hér á landi næsta haust. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu fela þessar hugmyndir í sér að komið verði upp kerfi þar sem fólk getur leigt sér bifreið með auðveldum hætti og skömmum fyrirvara. Bæði væri um að ræða leigu til lengri og skemmri tíma jafnvel allt niður í um klukkustund, þar sem viðskiptavinur pantar bíl, sækir hann á ákveðinn stað og skilar honum þangað eftir notkun. Hugmyndirnar eru settar fram af fyrirtækjunum, þar á meðal eru Landsbankinn, Landspítalinn, Advania, Reykjavíkurborg, og eru hugsaðar fyrir starfsfólk þeirra, en Finnur segir að ef hugsanlegir rekstraraðilar sjái færi á víðari markaði sé það þeirra að ákveða. „Þarna sköpuðust jákvæðar og uppbyggilegar umræður. Menn voru einmitt að spyrja réttu spurninganna til að fá á hreint hvað þurfi til að þetta verkefni komist af stað.“ Finnur sagðist trúa því að fundurinn hafi komið skyndibílaverkefninu á góðan rekspöl. „Það er jákvæðni í garð verkefnisins. Hvenær af verður er erfitt að segja, en ég held að við tökum næstu skref fljótlega og ræðum þá enn betur við þá sem vilja koma að þessu.“ Finnur segir aðalmálið nú að fá á hreint hversu stór markaðurinn gæti verið utan aðstandendahópsins og það verði metið í framhaldinu. Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz bílaleigu, segir í samtali við Fréttablaðið að þeim hafi þótt hugmyndin spennandi þó markaðurinn hér á landi sé að vísu nokkuð lítill. „En Hertz er með svipað kerfi erlendis þar sem notast er við sambærilegar tæknilausnir,“ segir Sigfús og þess vegna gæti undirbúningurinn tekið skemmri tíma ef af yrði. „Það er engin spurning um að þetta er spennandi verkefni. Það þarf enn nokkurn undirbúning, en ég get alveg séð það fyrir mér að ef allt gengur upp gætum við byrjað þetta með haustinu.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Sjá meira