Innlent

Bílþjófnaður í Eyjum

Tilkynnt var um bílþjófnað í Vestmannaeyjum í gærmorgun og fann lögreglan bílinn fyrir utan íbúðarhús.

Þar voru tveir karlmenn og tvær konur handtekin og játaði annar karlmannanna að hafa stolið bílnum. Einnig fundust fíkniefni í íbúðinni, sem karl og kona úr hópnum játuðu að eiga.

Hinsvegar er þjófnaður á 60 þúsund krónum úr peningaskáp á pósthúsinu í gærmorgun, óupplýstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×