Innlent

HH segir sýslumenn standa í ólöglegum aðgerðum

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) telja, í ljósi nýgengins Hæstaréttardókms um ólögmæti vaxtaútreikninga gengistryggðra lána, að sýslumenn sem framkvæmt hafa fjárnám, nauðungarsölur og gjaldþrotaúrskurði á grundvelli slíkra ólögmætra útreikninga, hafi tekið sér dómsvald á meðan réttaróvissa ríkti.

Þar með hafi þeir brotið stjórnsýslulög og jafnvel stjórnarskrá. Þá hafa samtökin beint því til innanríkisráðherra að lög um endurupptöku verði skýrð til þess að fólk sem gengið hefur verið að, á ólöglegan hátt, geti leitað réttar síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×