Innlent

Kom að þjófum á heimili sínu

Húsráðanda í íbúð í Hraunbæ í Reykjavík var illa brugðið þegar hann kom heim til sín í gærkvöldi, því þar voru tveir óboðnir gestir í óða önn að sanka að sér verðmætum úr íbúðinni.

Þeir komust undan og er ekki ljóst hvort þeir höfðu einhver verðmæti á brott með sér. Svo var brotist inn í fyrirtæki við Borgartún í nótt og komust þjófarnir undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×