Innlent

Rúmlega fjögur þúsund sækja um að skjóta hreindýr

Þrátt fyrir að það muni kosta 135 þúsund krónur að fá að skjóta einn hreindýratarf í sumar, hefur Umhverfisstofnun fengið rúmlega 4.300 umsóknir um veiðileyfi.

Leyft verður að veiða rétt liðlega þúsund dýr þannig að eftirspurnin er margfalt framboðið. Veiðileyfi á kýrnar eru mun ódýrari, eða 80 þúsund krónur á stykkið.

Við kostnaðinn af veiðileyfunum bætist svo kostnaður við að leigja sér leiðsögumann og greiða fyrir aðstoð við að gera að dýrunum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Kristínu Hávarðsdóttur í Oddskarði í gærmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×