Innlent

Hassmolar í heimahúsi

Tæki og tól til þess að reykja hass.
Tæki og tól til þess að reykja hass. mynd úr safni
Lögregla á Akranesi framkvæmdi húsleit í heimahúsi í vikunni þar sem nokkrir hassmolar fundust. Húsráðandi gekkst við að eiga molana. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að nokkrir umráðmenn ökutækja hafi fengið sektarboð vegna ólöglegrar lagningar og þá voru einnig skráningarnúmer tekin af nokkrum ökutækjum vegna þess að þau voru ótryggð auk þess sem sum þeirra höfðu ekki verið færð til skoðunar um langan tíma.

„Sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Í tveimur tilfellanna var um lítilsháttar meiðs á fólki að ræða auk eignatjóns. Einn ökumaður var svo færður á lögreglustöð grunaður um ölvun við akstur. Hann var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða að lokinni sýna og skýrslutöku," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×