Innlent

Mótmælt eftir að Kóraninum var fleygt í ruslagám

Frá mótmælunum í dag.
Frá mótmælunum í dag. mynd/AP
Yfirmaður herafla NATO í Afganistan hefur beðist afsökunar eftir hermenn förguðu nokkrum eintökum af Kóraninum með óviðeigandi hætti.

Orðrómur var á kreiki um að hermennirnir hefðu brennt Kóraninn og í kjölfarið var mótmælt við herstöð NATO í Kabúl.

Fréttaritari BBC sagði að nokkrir úr hópi mótmælenda hefðu grátið vegna orðrómsins á meðan aðrir fleygðu bensínsprengjum að hermönnum.

Það kom síðan í ljós að hermennirnir höfðu fleygt nokkrum eintökum af Kóraninum í ruslagám og var beðist afsökunar á því eins og áður segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×