Segja ríkisstjórnina reyna að vinna stuðning Hreyfingarinnar Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 21. febrúar 2012 17:25
Þingmenn tókust á um hvernig ætti að fara með frumvarp stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin var sökuð um að þrýsta málinu í gegn til að tryggja stuðning Hreyfingarinnar við stjórnina. Í tillögu meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis er lagt til að stjórnlagaráð verði kallað aftur saman í mars næstkomandi og þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá fari fram í júní. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn tóku tillögunni illa í þingsal í dag þegar síðari umræða um hana hófst og sögðu hana ekki þingtæka vegna mikilla breytinga í meðferð nefndarinnar. „Og sú afsökun forseta, frú forseti að um sama heiti á tillögunni sé að ræða og það dugi til þess að hún sé þingtæk vísa ég á bug, það er ekki nóg að heitið eitt standi eftir," segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. „Hér er í öllum megin atriðum um nákvæmlega sömu þingsályktun að ræða og hún hefur verið unnin í samraði við alla flutningsmenn málsins svo ég bið menn að fara ekki með rangt mál," bætti hún við. Gunnar Bragi Sveinsson sagði vera sannfærður um það að á endanum myndi ekki takast að breyta stjórnarskránni með þeirri aðferðarfræði sem væri verið að leggja upp með. „Því það er allt vont við þá aðferðafræði," sagði hann svo. Össur Skarphéðinsson sagðist vera hissa á ræðum Framsóknarmanna. „Þetta mál varð til að þeirra frumkvæði. Þeir mynduðu heila ríkisstjórn í kringum það að breyta stjórnarskránni. Síðan hefur Framsóknarflokkurinn lagst hundflatur á eftir sjálfstæðisflokkurinn og lullar á eftir honum í öllum málum eins og þessum," sagði Össur. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að nú væri að koma í ljós að ráðherrarnir væru að berjast mjög fyrir því að Hreyfingin fengi þetta mál hér í gegn, „sem hlýtur að vera að menn hafi komist að fyrir jólin að því að ráðherrar myndu sjá til þess að málið fengi meðferð því það er skilyrði þess að halda ríkisstjórninni á lífi," sagði Bjarni og vitnaði þar til funda á milli Hreyfingar og ríkisstjórnarinnar á milli jóla og nýárs, þegar Hreyfingin var beðin um að verja ríkisstjórnina vantrausti.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira